Fool's Gold
 

 

 

Matthew McConaughey (Finn) og Kate Hudson (Tess) geisla ekki endilega af sjarma saman á hvíta tjaldinu í þessari mynd, en myndin er þó alls ekki eins slæm og búast hefði mátt við. Tess og Finn eru nýlega fráskilin en lenda þó saman í æsilegri fjársjóðsleit. Ástarævintýri þeirra er þó ótrúverðugt, söguþráðurinn almennt afar ófrumlegur og jafnvel kjánalegur, sem og framvindan, en það er þó eitthvað skemmtilega heillandi og sumarlegt við þessa annars klisjukenndu mynd.

Hér er öllum heitt í sólinni í Flórída, sjórinn stilltur og himinninn heiður - er hægt að biðja um meira?

 

María Margrét Jóhannsdóttir

 



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com