|
|
Cloverfield | |
![]()
|
New York verður fyrir skelfilegri ófreskjuárás og algjört upplausnarástand ríkir í borginni. Nokkrir vinir lenda í miðri hringiðunni og ákveða að flýja ekki frá Manhattan þegar þau komast að því að vinkona þeirra er föst undir vegg í íbúðinni sinni bjargarlaus. Cloverfield er dæmigerð skrímslamynd, sem fylgir formúlunni nokkuð vel. Myndin er eingöngu sýnd frá sjónarhorni myndbandstökuvélar sem vinahópurinn notar og því fylgja auðvitað ákveðin sjóveikisáhrif, en þó ekki eins mikil og maður hefði búist við, en þetta er þó klárlega ekki mynd fyrir þá sem þola illa slíkan hristing. Leikararnir eru lítt þekktir en komast vel frá sínum hlutverkum. Cloverfield vakti mikla athygli í Bandaríkjunum í upphafi árs en hér er þó ekki á ferðinni nein tímamótamynd. Það er lítið sem kemur á óvart, því miður. Það er svo eins og myndin haldi áfram þegar bíógestir koma út úr bíósalnum í íslenskt febrúaróveðrið, og skrímslin virðast leynast í öllum skúmaskotum.
|

Til
baka á
forsíðu
Kvikmyndir.com