Charlie Wilson's War
 

 

Charlie Wilson er þingmaður frá Texas.  Hann er óheflaður í allri sinni framkomu, drykkfelldur og skammast sín ekki fyrir það að skemmta sér með melludólgum og strippurum.  Hann beitir sér ekki fyrir mörgum málum, sér í lagi málum sem koma honum ekkert við.  Þetta breytist allt þegar Sovétríkin ráðast inn í Afganistan því allt í einu fer þingmaðurinn frá Texas að beita sér af fullum krafti fyrir stuðningi Bandaríkjanna við Afgani.

Það er Aaron Sorkin sem skrifar handrit myndarinnar sem byggt er á raunverulegum atburðum.  Aaron Sorkin er auðvitað þekktur fyrir að vera maðurinn á bakvið West Wing þáttaseríuna.  Margt af því sem einkenndi West Wing má finna í þessari mynd. 

Charlie Wilsons War fjallar um stjórnmál og stríð en er á sama tíma mjög létt og skemmtileg og á köflum stórfyndin.  Að nokkru leyti er það aðalleikurunum Tom Hanks og Philip Seymore Hoffman að þakka en báðir eru þeir alveg frábærir í sínum hlutverkum. 

Það er ekki annað hægt en að mæla með þessari mynd.  Hún er frábær skemmtun, einstaklega vel skrifuð, fyndin og jafnvel lærdómsrík. 

Davíð Örn Jónsson

 



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com