|
|
Atonement | |
![]()
|
Friðþæging, Atonement, er byggð á samnefndri bók breska rithöfundarins Ian McEwan, sem hefur hlotið mikið lof lesenda og gagnrýnenda. Myndarinnar hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu og hér er vissulega á ferðinni vönduð og nokkuð áhrifamikil mynd, en þó ekki sú ógleymanlega stórmynd sem búast mátti við. Sagan hefst á fjórða áratugnum á sveitasetri í Bretlandi þar sem óvæntur atburður setur líf aðalpersónanna úr skorðum svo um munar. Í grunninn er þetta að mestu leyti ástarsaga en að minna leyti saga um friðþægingu, eins og titillinn gefur þó til kynna. Helsti galli myndarinnar er að hún nær hápunkti fyrir miðja mynd og verður í raun óþægilega flöt eftir það og jafnvel fyrirsjáanleg. Leikararnir eiga hins vegar flestir hrós skilið fyrir frammistöðu sína, einkum James McAvoy og Kiera Knightley. Sagan er dramatísk og áferð myndarinnar öll hin glæsilegasta, en því miður nær myndin aldrei sömu hæðum og önnur nýleg mynd um friðþægingu, myndin frábæra um flugdrekahlauparann.
|

Til
baka á
forsíðu
Kvikmyndir.com