|
Hallur
Örn Jónsson
gagnrýnandi Kvikmyndir.com hefur tekið saman lista
yfir þær myndir sem hann telur áhugaverðastar af
vormyndunum í Hollywood.
HOLLYWOOD VORIÐ 2002
Mánuðirnir
frá janúar fram til apríl er óttaleg gúrkutíð
í Hollywood. Beðið er með stærstu myndirnar fram
til sumars þegar flestir fara í bíó og þær sem
vonast er að vinni til verðlauna eru sýndar enn
seinna á árinu. Fyrstu tveimur mánuðunum er
vanalega eytt í myndir sem teknar voru til takmarkaðra
sýninga fyrir áramót svo að þær gætu tekið
þátt í óskarskapphlaupinu. Meðal slíkra mynda í
ár má nefna “Beautiful Mind” og “Black
Hawk Down”. Í mars og apríl er svo meira um
alvöru frumsýningar og þó að margar af þeim
myndum séu lítt spennandi þá leynast þó nokkrar
áhugaverðar myndir inn á milli. Hér hef ég svo
haldið hefðinni við og tekið saman lista yfir þær
fimm sem ég hlakka mest til að sjá og nokkrar aðrar
sem lofa tiltölulega góðu. Þó verður alveg að
viðurkennast að þegar litið er yfir allt tímabilið
þá er framboðið ekkert sérstaklega spennandi.
5. Full
Frontal
Ég
gat auðvitað ekki stillt mig um að setja nýjustu
Steven Soderbergh myndina á topp fimm listann. Þessi
mynd er hins vegar mun minni í sniðum en síðustu
verk hans enda kostaði hún ekki nema tvær milljónir
dollara sem telst lítið í dag. Sömuleiðis var hún
bara tekin á 18 dögum. Þó vantar ekki stjörnurnar
en Julia Roberts er í aðalhlutverki en einnig er þarna
að finna David Hyde Pierce úr “Frasier” og David
Duchovny. Myndin sjálf er nokkurs konar sjálfstætt
framhald af “Sex, Lies and Videotapes” sem
Soderbergh gerði árið 1989 en hún gerist á 24 tímum.
Ekki er ég alveg klár á því hvernig söguþráðurinn
er nákvæmlega en þó veit ég að þemað er
mannleg samskipti. Soderbergh hefur hingað til ekki
valdið vonbrigðum og ég reikna ekki með að hann
byrji á því núna.
4. The Sweetest
Thing
Cameron
Diaz er tel ég komin í þann flokk leikara sem
fyrirfram veita myndum sínum ákveðinn gæðastimpil.
Ferill hennar allt frá stóru frumrauninni sem
ofurkynbomban í “The Mask” hefur nánast eingöngu
legið upp á við enda hefur hún valið verkefni sín
vel og sömuleiðis sýnt fram á að hún er hin ágætasta
leikkona. Svo spillir auðvitað ekki útlitið fyrir!
Persóna hennar í þessari mynd er búin að fá nóg
af ástinni þegar hún loksins hittir þann rétta.
Til að koma henni aftur í rétta gírinn þá mælir
vinkona hennar með að þær fari í þjóðvegaferð.
Handritshöfundurinn hefur unnið við South Park þættina
og leikstjórinn er Roger Kumble sem síðast gerði
Cruel Intentions. Þessi mynd verður því áreiðanlega
ekki of sykursæt en hins vegar trúi ég því að það
verði nóg af beittum húmor.
3.
The Count of Monte Cristo
Ég
skal strax viðurkenna að ég er nokkur aðdáandi þess
sem á ensku er kallað “period-pieces”, þ.e.
myndir sem þar sem sögusviðið er nokkuð fjarlægt
okkur í tíma. Því bíð ég nokkuð spenntur eftir
að sjá hvernig tekið verður á skáldsögu
Alexandre Dumas um greifann af Monte Cristo. Þema bókarinnar
er eins og eflaust margir vita hefnd. Ungur maður er
fangelsaður en þegar hann sleppur út vill hann gera
upp sakirnar við þá sem læstu hann inni. Í aðalhlutverkum
hér eru þeir Guy Pearce og Jim Cavaziel en leikstjórinn
er Kevin Reynolds sem m.a. leikstýrði Hróa
Hattar-mynd Kevin Costners.
2. Death to
Smoochy
Eruð
þið búin að fá nóg af þessum óheyrilega sætu
barnafígúrum eins og Teletubbies, kettinum Kela og
hvað þetta nú allt heitir? Þá munuð þið
vonandi hafa gaman af þessari sótsvörtu kómedíu
þar sem Robin Williams leikur barnaþáttastjórnanda
sem er einhvers konar búningsfígúra. Einn daginn er
hann rekinn og ákveður hann að hefna sín með því
að bókstaflega gera út af við nýja staðgengilinn
Smoochy sem Edward Norton leikur. Danny DeVito leikur
einnig ásamt því að leikstýra og sömuleiðis er
hinn skemmtilega Jon Stewart þarna í hlutverki
framkvæmdastjóra sjónvarpsstöðvarinnar. Þetta ætti
allavega að verða skrautlegt!
1. Panic Room
Einn
áhugaverðasti leikstjóri Hollywood í dag er án
efa David Fincher. Meðal mynda hans má nefna
“Fight Club”, “Seven”, “The Game” og
“Alien 3”. Ekki slæmur listi það! Nýjasta
verkefni hans er spennumynd þar sem Jodie Foster
leikur húseiganda sem verður fyrir því óláni að
ræningjar ráðast inn. Hún, ásamt syni sínum,
loka sig inn í herbergi sem einmitt er hannað til að
verjast óæskilegum aðilum. Þó þurfa þau að
berjast fyrir lífi sínu. Fincher og Foster saman er
nægilega stór gæðastimpill til að setja myndina
í efsta sæti yfir áhugaverðar myndir í þetta
skiptið.
|