HOLLYWOOD HAUSTIÐ 2001

 








Hallur Örn Jónsson gagnrýnandi Kvikmyndir.com hefur tekið saman lista yfir þær myndir sem hann telur áhugaverðastar af haustmyndunum í Hollywood.

HOLLYWOOD HAUSTIÐ 2001

Nú þegar hausta tekur má segja að uppáhaldstími margra kvikmyndaáhugamanna gangi í hönd. Ástæðan er sú hefð sem skapast hefur hjá kvikmyndaverunum í Hollywood að bíða með að frumsýna margar af sínum bestu myndum fram á haust. Það gera þau í þeirri von að myndirnar þeirra verði sem ferskastar í hugum þeirra sem tilnefna myndir til eftirsóttustu verðlaunanna, Golden Globe og auðvitað Óskarsins. Það er því engin tilviljun að þrettán af síðustu átján óskarsverðlaunamyndum voru frumsýndar mánuðina september til desember og þar af voru ellefu þeirra frumsýndar í nóvember eða desember. Hollywoodhaustið 2001 virðist ekki ætla að vera nein undantekning þar á en margar reglulega áhugaverðar myndir verða teknar til sýninga núna og bætir það vonandi fyrir fremur dapurt sumar. Því hef ég nú tekið saman lista yfir fimm áhugaverðustu myndirnar sem frumsýndar verðar í Bandaríkjunum í haust, þ.e. mánuðina september til desember, ásamt því að minnast á nokkrar aðrar myndir sem lofa góðu. Reyndar er þessi listi þó ekki tæmandi þar sem úrvalið er mikið. Svo er bara að vona að kvikmyndahúsin hér sitji ekki of lengi á þessum myndum heldur taki þær til sýninga sem fyrst.


5. Gangs of New York
Það sem heillar mig kannski helst við nýjustu mynd Martins Scorsese er sögustaðurinn sem er New York á miðri 19. öld. Þetta er augljóslega mikið umbreytingarskeið í sögunni sem hefur hlotið ótrúlega litla athygli kvikmyndagerðarmanna. Umfjöllunarefnið er barátta eldri írskra innflytjenda við nýrri landnema frá öðrum stöðum í Evrópu, s.s. Ítalíu, í hverfinu Five Points í Manhattan. Scorsese byggir handritið á bók eftir Herbert Ashbury frá 1928 sem er að einhverju leyti sannsöguleg. Ljóst er að þessi mynd hlýtur að vera mikið sjónarspil og sérstaklega spennandi fyrir sagnfræðiáhugamenn. Í fararbroddi leikara fara Leonardo DiCaprio, Cameron Diaz og Daniel Day Lewis. Nú er bara að sjá hvernig Scorsese tekst til við að endurvekja forna tíma.

4. Harry Potter and the Sorcerer’s Stone
Ótrúlega margir vita hvaða merkingu orð eins og “Hogwarts,” “Quidditch,” og “Gryffindor” hafa, enda hlutar af undraheimi skoska rithöfundarins J.K. Rowlings. Það var auðvitað óhjákvæmilegt að hinar ótrúlega vinsælu sögur hennar um töfrastrákinn Harry Potter yrðu kvikmyndaðar. Fáir bjuggust hins vegar við hversu mikið mál það yrði. Aðdáendur bókanna hafa fylgst grannt með öllum fréttum af gerð myndarinnar og hafa verið fljótir að lýsa óánægju sinni ef eitthvað var þeim ekki að skapi. Meðal þess sem valdið hefur taugatitringi er valið á leikstjóra myndarinnar, Chris Columbus sem er sennilega þekktastur fyrir myndirnar Miss Doubtfire og Home Alone 1 og 2. Hafa háværar raddir haldið því fram að hann einfaldlega geti ekki skilið dimmu hliðar sagnanna um Harry Potter. Annað sem valdið hefur ágreiningi er valið á Harry Potter sjálfum en J.K. Rowling tók skýrt fram að leikarinn skildi vera breskur og varð hinn óþekkti Daniel Radcliffe fyrir valinu. Loks hafa svo verið deilur um staðsetningu örsins á enni Potter sem aðdáendum fannst ekki vera á réttum stað. En þetta virðist nú allt vera fallið í ljúfa löð enda myndin nánast tilbúin. Ég persónulega er vongóður enda fínir breskir leikarar í stórum rullum, s.s. Alan Rickman, Robbie Coltrane og John Cleese. Þó er ljóst að myndin þarf að vera reglulega góð ef takast á að halda æstum aðdáendunum ánægðum.

3. Ocean’s Eleven
Steve Soderbergh er nafn sem flestir kvikmyndaáhugamenn ættu að kannast við. Ris hans til frama hefur verið snöggt og er ekki á neinn hallað þegar sagt er að hann sé heitasti leikstjóri Hollywood í dag. Á síðasta ári vann hann það einstaka afrek að vera tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir tvær myndir, Erin Brockovich og Traffic. Því er það ekki skrítið að margir bíði spenntir eftir þessu nýjasta afsprengi hans sem inniheldur ekki minni leikara en Juliu Roberts, George Clooney og Brad Pitt. Myndin fjallar um 11 ræningja sem taka sig saman og skipuleggja rán á þremur spilavítum í Las Vegas. Þetta er endurgerð af samnefndri mynd frá árinu 1960 þar sem Rottugengið (e. Rat Pack) með Frank Sinatra í fararbroddi voru í aðalhlutverkum. Nú er bara að sjá hvort sigurför Soderberghs haldi áfram.

2. Vanilla Sky
Ég verð að játa að ég bíð alltaf sérstaklega spenntur eftir verkum frá Cameron Crowe en síðustu tvær myndir hans eru hinar frábæru Almost Famous og Jerry Maguire. Nýjasta verkefni hans er endurgerð af mynd Alejandro Amenábar, Abre Los Ojos. Crowe og Tom Cruise, sem leikur aðalhlutverkið, hafa unnið náið saman að gerð myndarinnar og hafa fengið Cameron Diaz, Kurt Russell og Penélope Cruz til liðs við sig. En sú síðastnefnda lék einmitt líka í upphaflegu útgáfu Amenábars. Reyndar er ekki alveg ljóst hversu nákvæmlega þeir félagar fylgja upphaflegu myndinni. Víst er þó að þeir hafa breytt sögustaðnum sem er nú Manhattan. Mynd Amenábars fjallaði um mann sem finnur hina einu sönnu ást en bíður síðan varanlegan líkamlegan skaða í bílslysi. Hvernig mynd Crowes og Cruise verður nákvæmlega fáum við hins vegar ekki að vita fyrr en í desember. En ef eitthvað er að marka gæði fyrra samstarfsverkefnis þeirra, Jerry Maguire, þá eiga kvikmyndahúsagestir von á góðu.

1. Lord of the Rings
Ég hugsa að þetta val mitt ætti nú ekki að koma neinum sérstaklega á óvart. Sjaldan hefur nokkur mynd hlotið jafn mikla umfjöllun fyrirfram og trilógía leikstjórans Peter Jackson sem auðvitað er byggð á samnefndri sögu J.R.R. Tolkien. Sú eina sem kemst nálægt er sennilega nýjasta Star Wars myndin, Phantom Menace. Nýjar vefsíður, tileinkaðar myndinni, hafa skotið upp kollinum með jöfnu millibili síðan í ljós kom að hún yrði framleidd enda er aðdáendahópur bókanna mjög breiður og stór. Tökur hafa farið fram samtímis á öllum þremur hlutum myndarinnar á Nýja-Sjálandi og verða næstu tvær myndir sýndar um jólin 2002 og 2003. Bækurnar fjalla um ferð fjögurra Hobitta inn í mitt landsvæði óvinarins Saurons til að eyðileggja hinn eina hring sem er undirstaða krafta hans. Margir úrvalsleikarar á borð við Cate Blanchett, Ian McKellen, Ian Holm, Viggo Mortensen og Christopher Lee leika stór hlutverk. Sjálfur Fróði Baggins er svo leikinn af Elijah Wood. Þetta er í fyrsta skipti sem reynt er að gera kvikmynd eftir þessari gríðarlega vinsælu sögu enda er það fyrst núna á síðustu árum sem tæknin hefur boðið upp á það. Árið 1978 var reyndar framleidd frekar misheppnuð teiknimynd. Þetta er stóra jólamyndin í Hollywood í ár og má gera ráð fyrir að hún skili inn rjúkandi hagnaði. Að lokum vil ég bara segja: Star Wars hvað?

 

 


 
 

 

 

 

 

 

NOKKRAR AÐRAR ÁHUGAVERÐAR MYNDIR


A Beautiful Mind

Bandits

From Hell

The Majestic

Monsters Inc.

The Last Castle

Royal Tennenbaums

The Shipping News

Training Day

Zoolander


The Majestic
Virkilega áhugaverð mynd sem hefði vel átt heima á topp fimm lista. Frank Darabont hefur allavega í bili sagt skilið við fangelsamyndirnar en tvær síðustu myndir hans voru hin stórkostlega “Shawshank Redemption” og hin síðri en samt góða “Green Mile”. Nú tekst hann á við Bandaríkin á tíma McCarthy á 6. áratugnum. Aðalhlutverkið leikur Jim Carrey sem lagði víst einkar mikla vinnu á sig fyrir hlutverkið. Hann leikur svartlistaðan Hollywood handritshöfund sem missir minnið í bílslysi og sest að í smábæ. Þar hefur hann svo nýtt og ólíkt líf. Þó er ekki langt að bíða að fortíðin hafi aftur upp á honum. Í öðru stóru hlutverki er Martin Landau sem hlaut óskarinn fyrir eftirminnilega túlkun sýna á Bela Lugosi í myndinni Ed Wood.

The Man Who Wasn't There
Nýjasta kvikmynd hinna skemmtilegu Cohen bræðra er svarthvít og skartar þeim Frances McDormand, James Gandolfini og Billy Bob Thornton í aðalhlutverkum. McDormand leikur eiginkonu Thornton en heldur fram hjá honum með yfirmanninum (Gandolfini). Thornton sem kemst að þessu kúgar Gandolfini til að fjárfesta í einhverju fatahreinsunar fyrirtæki. Eins og áður eru Cohen bræður greinilega ekki hræddir við að feta ótroðnar slóðir. Þó hefur myndinni verið líkt við Film-Noir og hlaut fína dóma þegar hún var sýnd á síðustu Cannes-hátíð.

Zoolander
Ben Stiller sest í leikstjórastólinn á ný eftir nokkuð hlé í þessari gamanmynd sem fjallar um karlkyns súpermódel sem er heilaþveginn af stórum fataframleiðanda með það að markmiði að fá hann til að myrða forseta Malasíu sem vill herða reglurnar á fataiðnaðinum þar í landi. Fín uppskrift af skemmtilegri gamanmynd. Leikaraliðið inniheldur Stiller sjálfan, Cuba Gooding Jr., Will Ferrell (Saturday Night Live), David Bowie, David Duchovny og fleiri góða.

Monsters Inc.
Með góðu gengi Toy Story-myndanna og nú síðast Shrek virðast tölvuteiknaðar myndir í æ ríkari mæli vera að taka við af gömlu teiknimyndunum. Sú nýjasta í þessari línu lofar góðu en umfjöllunarefnið er krísa sem skrímsla-fyrirtæki lendir í þegar börn hætta að hræðast afurðir þess. Topp leikarar ljá raddir sínar, m.a. Billy Crystal, John Goodman og Steve Buscemi. Þessi mynd er þó sennilega helst gíruð fyrir yngstu kynslóðina.

A Beautiful Mind
Ein af þessum myndum sem virðist sérstaklega framleidd með Óskarinn í huga. Sannsöguleg mynd þar sem Russell Crowe leikur ungan stærðfræðisnilling sem greinist með geðklofa á 6. áratugnum. Fylgst er með baráttu hans við sjúkdóminn, ástina og lífið í kjölfar þess. Ed Harris leikur geðlækninn sem hjálpar Crowe að berjast við sjúkdóminn en Ron Howard (Apollo 13, Grinch) leikstýrir. Ég þori ekki að veðja gegn því að Harris eða Crowe fái tilnefningar.

The Shipping News
Önnur mynd sem gæti verið ofarlega á blaði þegar kemur að óskarsvertíðinni. Af hverju segi ég það? Í fyrsta lagi er um Miramax mynd að ræða en það er orðin löng hefð að það fremur litla stúdíó eigi eina af fimm myndunum sem tilnefndar eru til óskars. Í öðru lagi leika margir fínir leikarar í myndinni, s.s. Judy Dench, Kevin Spacey og Cate Blanchett. Í þriðja lagi leikstýrir Lasse Hallström (Chocolat, The Cider House Rules). Í fjórða lagi er hún frumsýnd síðustu helgi ársins. Í fimmta lagi er hún samin upp úr samnefndri bók sem hlaut Pulitzer verðlaunin og að lokum er viðfangsefni mjög mannlegt. Spacey leikur föður sem ásamt syni sínum flytur frá New York til Nýfundnalands í kjölfar láts eiginkonu hans. Þar kynnist hann svo nýrri konu sem býr yfir einhverju leyndarmáli. Uppskrift að verðlaunamynd en þó eru það einmitt oft nákvæmlega svona myndir sem “floppa”, t.d. “Pay it Forward”.

The Last Castle
James Gandolfini (Sopranos) leikur óskemmtilegan fangavörð og Robert Redford leikur hershöfðingja sem sendur er í steininn fyrir að fylgja ekki skipunum. Redford skipuleggur fjöldauppreisn í fangelsinu. Gaman verður að sjá samleik Redford og Gandolfini hér.

From Hell
Að sjá Johnny Depp leika rannsóknar-
lögreglumann sem eltir sjálfan Jack the Ripper í mynd sem gerist í Englandi á 19. öld hljómar afskaplega vel í mínum eyrum. Ekki skemma heldur aðrir leikarar s.s. Ian Holm og Robbie Coltrane og Heather Graham sem aðstoða Johnny Depp. Myndinni er leikstýrt af Hughes bræðrunum sem áður hafa gert Menace II Society og Dead Presidents. Öðruvísi verkefni fyrir þá en reglulega áhugavert. Þó er leitt að heyra að FOX kvikmyndaverið skipaði Hughes bræðrum að minnka ofbeldið en svona er víst Hollywood. Peningar eru ofar á forgangslistanum en list.

Training Day
Ethan Hawke leikur nýja löggu í Los Angeles. Hann er settur undir verndarvæng eldri félaga Denzel Washington og saman eiga þeir að berjast við eiturlyfjavandann þar í bæ. Persóna Hawke kemst þó fljótt að því að Washington er ekki allur sem hann er séður og óljóst hvorum megin við strikið hann raunverulega er. Aðrir leikarar eru m.a. Dr. Dre og Robert Duvall. Sérstök blanda.

Royal Tennenbaums
Þrumuleikhópur, m.a. Gwyneth Paltrow, Anjelica Huston, Gene Hackman, Ben Stiller og Bill Murray leika í mynd leikstjórans Wes Andersons sem gerði síðast hina velheppnuðu Rushmore. Systkyni sem öll höfðu einhverja sérstaka hæfileika en misnotuðu þá hittast aftur að tilstuðlan föður þeirra. Myndin er tekin hér og þar í heiminum og ætti vonandi að verða góð gamanmynd. Allavega hljóta atriði sem innihalda þá Hackman, Stiller og Murray að vera nokkurra brosa virði.

Bandits
Rómantísk-gaman- þjóðvega-glæpamynd þar sem Bruce Willis og Billy Bob Thornton leika heillandi glæpamenn sem verða fyrir því óhappi að falla fyrir sömu óhamingjusömu húsmóðurinni (Cate Blanchett) með ófyrirséðum afleiðingum. Leikstýrð af Barry Levinson en handritið er lausilega byggt á sannri sögu.