|

|
Þorkell Sigvaldason
Hringadróttinssaga í bíó
Um
næstu jól, í desember 2001, kemur loks að því að þrjár af vinsælustu
bókum aldarinnar sem var að líða fái að njóta sín á hvíta
tjaldinu. Í heildina verða myndirnar þrjár talsins og verða frumsýndar
í desembermánuði næstu þrjú ár, þ.e. 2001, 2002 og 2003.
Myndirnar munu fylgja söguþræði bókanna í öllum meginatriðum, en
hins vegar hefur heyrst að skilin milli myndanna eigi eftir að vera á
örlítið öðrum stöðum en skilin á milli bókanna. Tökur á
myndunum undir stjórn Peter Jackson hafa staðið yfir undanfarið á Nýja-Sjálandi
og hefur mikið gengið á.
Peter Jackson hefur þurft að láta hart mæta hörðu til að koma í
veg fyrir að upplýsingum um gerð myndanna væri smyglað frá tökustað.
Þrír hafa verið handteknir í þessu sambandi. Áhættuleikari var
handtekinn fyrir að að fjölfalda myndbönd, en á þeim voru upptökur
frá tökustað. Hann játaði glæp sinn fyrir rétti í Auckland.
Einnig hefur maður verið handtekinn fyrir peningaþvætti í sambandi
við myndirnar. Loks var annar maður handtekinn fyrir þjófnað. Þannig
að það er alltaf eitthvað að gerast.
Áður
hefur Bandaríkjamaðurinn Ralph Bakshi reynt að gera teiknimynd byggða
á sögu Tolkiens en ekki gekk það hjá honum. Það sem aðallega
vantaði þar upp á var að honum tókst ekki að koma frá sér allri
sögunni. Teiknimynd þessi endar víst á frekar óhentugum stað eða
um miðja vegu inni í bók tvö.
Strax og það fréttist að gera ætti myndir byggðar á Hringadróttinssögu
komust á kreik hinar ýmsu sögusagnir um það hver myndi leika hvern
í myndunum. Meðal annars var Sir Sean Connery nefndur til sögunnar en
honum var víst ætlað hlutverk Gandalf. Hlutverkið fór þó á
endanum til Sir Ian McKellen (Richard III, Gods and Monsters, X-Men) sem
er ekki síður vel til þess fallinn að leika gamlan og fúlan kall
sem er samt skemmtilegur á sinn hátt.
Aðrir þekktir leikarar sem hafa fengið hlutverk við myndina eru m.a.
Ian Holm (Alien, eXistenZ, The Fifth Element), Cate Blanchett
(Elizabeth, The Talented Mr. Ripley), Liv Tyler (Stealing Beauty,
Armageddon), Sean Bean (Patriot Games, Goldeneye, Ronin). Þá er hægt
að nefna leikara eins og
Elijah Wood (Deep Impact, Flipper) og John Rhys-Davies (Raiders
of the Lost Ark, The Living Daylights). Síðast en ekki síst má nefna
Christopher Lee. Honum er ætlað hlutverk Saruman (en hann hefur
reyndar einnig fengið hlutverk í Star Wars: Episode II).
Fjölskylda rithöfundarins J.R.R. Tolkiens virðist hins vegar ekki sátt
við það að stórmyndir séu gerðar eftir verkum hans. J.R.R.
Tolkien sjálfur lést árið 1973, en hann var alla tíð á móti því
að gera bækurnar að meiri söluvöru en þær voru. Þar á meðal
var hann ekki hrifinn af þeirri hugmynd að gera bíómynd eða láta búa
til Frodo-dúkkur. Nú þegar bíómyndin hefur loks verið gerð sér
Tolkien-fjölskyldan fyrir sér að aðdáendur bókanna eigi eftir að
gera henni lífið óbærilegt. John Tolkien, sonur rithöfundarins,
telur að fjölskyldan þurfi einfaldlega að að fara í felur meðan
á sýningu myndanna stendur til þess að sleppa við áreiti frá full
áköfum aðdáendum. Hins vegar hefur fjölskyldan ekki átt kvikmyndaréttinn
að bókunun síðan á sjöunda áratugnum, þannig að New Line Cinema
(framleiðendur myndarinnar) þurfa ekki að hafa hana með í ráðum.
Reyndar mun leikstjóri myndanna, Peter Jackson, að einhverju leyti
hafa unnið verkið með samþykki fjölskyldunnar.
Nú er nánast engin stórmynd gerð nema jafnframt séu gerðir
samningar um að búa til leikföng í tengslum við myndina. Hér er
kvikmyndinar um Hringadróttinssögu engin undantekning. Leyfið til að
búa til Frodo og Sam dúkkur fór til Marvel Enterprises, en það
fyrirtæki hefur verið að rétta úr kútnum fjárhagslega undanfarið
eftir erfið ár og ef myndirnar verða eins vinsælar og bækurnar þá
mun þetta koma sér vel fyrir fyrirtækið.
Í
tengslum við myndina hefur New Line Cinema komið á fót einni glæsilegustu
vefsíðu sem hefur verið gerð vegna kvikmyndar - www.lordoftherings.net.
Vefsíðan er á ellefu tungumálum og samkvæmt Wall Street Journal er
stefnan að setja inn myndir af öllum þeim sem komu að gerð
myndanna.
Nú
er bara að vona að myndirnar verði eins góðar og vinsælar og bækurnar
eru, því nógu mikið er nú búið að hafa fyrir að koma þeim á
hvíta tjaldið. Reyndar er þó hætta á því að margir aðdáendur
bókanna muni gera óraunhæfar kröfur til myndanna og eigi ekki eftir
að meta þær sem sjálfstætt verk heldur bera þær að öllu leyti
saman við bækurnar.
Þorkell
Sigvaldason er
stjórnmálafræðinemi
|
|