GREINAR

 



Þorkell Sigvaldason
Star Wars: Episode II

Árið 2002 kemur út enn ein Star Wars myndin. Hingað til hefur hún ekki fengið neitt annað heiti en einfaldlega Star Wars: Episode II (eða á íslensku Stjörnustríð, annar þáttur). Mynd þessi mun vera, eins og nafnið gefur til kynna, framhald Star Wars: Episode I. The Phantom Meanace. Það þýðir sem sagt að við fáum að sjá allar uppáhaldspersónurnar okkar aftur og Jar-Jar Binks.

Fyrst um sinn var aðal spenningurinn í sambandi við myndina spurningin um hver myndi hljóta hið eftirsótta hlutverk Anakin Skywalker. Margir voru nefndir til sögunnar og af þeim má helst nefna Ryan Philippe (Cruel Intentions), Colin Hanks (sonur Tom Hanks), Jonathan Jackson úr þáttunum General Hospital og Joshua Jackson úr Dawsons Creek. Einnig var til skamms tíma orðrómur í gangi þess efnis að Leonardo Di Caprio (Titanic, The Beach) væri líklegur til að fá hlutverkið. Á endanum var það svo hinn lítt þekkti kanadíski leikari Hayden Christiansen sem fékk hið eftirsótta hlutverk. Það sem réð úrslitum í sambandi við það að Hayden Christiansen fékk hlutverkið var hversu vel hann og Natialie Portman náðu saman í prufutökum fyrir hlutverkið. Þau virðast hafa náð mjög vel saman því síðustu fréttir herma að þau séu byjuð saman.

Stór hluti, ef ekki öll myndin, var tekinn upp á stafrænar myndavélar. George Lucas heldur því fram að með því að taka myndina upp á stafrænar myndavélar sparist töluverður tími við tökur myndarinnar, en ekki eru allir sammála honum. Einn af framleiðendum myndarinnar, Rick McCallum, heldur því fram að enginn tími sparist með þessu vegna þess hve flókin myndin er í vinnslu. Það sem George Lucas finnst unnið með því að nota stafrænar myndavélar við tökur á myndinni er að litir og önnur þannig atriði koma mun betur út með því að nota stafrænu myndarvélarnar. Að auki skemmir það ekki fyrir að það þarf ekki að eyða nærri því eins miklum peningum í að kaupa filmur og þess háttar dót og hefði þurt að gera ef hefðbundar myndavélar hefðu verið notaðar.

Margir leikarar koma við sögu í myndinni. Að sjálfsögu verða helstu leikarar úr Episode I í myndinni þ.e. Ewan McGregor, Natialie Portman, Samuel L. Jackson. Til viðbótar má nefna áðurnefndan Hayden Christiansen, Christopher Lee (sem leikur einnig í Hringadróttinssögu). Jimmy Smits úr NYPD Blue fékk hlutverk í myndinni, en á tímabili voru í gangi orðrómar um það hvort að hann væri í myndinni, tilkynningar komu út sitt á hvað þar sem annað hvort var staðfest eða dregið til baka hvort hann yrði í myndinni. Á endanum var það svo að hann fékk hlutverk í þessari mynd og einnig framhaldi hennar sem kemur út 2005.

Ein af sorglegri fréttunum sem hefur borist frá aðstandendum myndarinnar er sú frétt að Kenny Baker muni ekki leika í fleiri Star Wars myndum. Baker er sá sem leikur Artoo Deetoo og er ef ég man rétt eini leikarinn sem hefur leikið í öllum fjórum Star Wars myndunum. Í stað þess að láta Baker leika Artoo þá á að gera Artoo í tölvu í nýju myndinni.

Eins og virðist vera komin hefð fyrir þá fóru ýmsir misgáfaðir Star Wars ofuraðdáendur að tjá sig um myndina. Sumir gengu meira að segja svo langt að þeir birtu það sem þeir sögðu vera handrit myndarinnar á vefnum. Í þessu falska handriti var farið út í einstök smáatriði m.a. var eltingaleik lýst í smáatriðum. Fljótlega kom í ljós að hér var á ferðinni maður sem hafði gert þetta áður t.d. falsað viðtöl við George Lucas. Hafði hann verið svo ákveðinn í falsfréttaflutningi sínum að Lucasarts sá sig tilneytt til þess að beita sér fyrir því að netsíðu hans yrði lokað. Einnig var annar ofuraðdáandi sem birti það sem hann sagði vera trailer myndarinnar en fljótlega kom í ljós að hér var einnig fölsk frétt á ferðinni.

Síðan bara til þess að segja frá því þá á einhverjum tölvuþrjót að hafa tekist að komast yfir alvöru handrit nýju Star Wars myndarinnar. Þetta handrit ætlar hann að selja hæstbjóðanda og skilst mér að fyrsta boð sé 100 þúsund dollarar (eða um 7 milljónir íslenskra króna). Upp komst um málið er tölvuþrjóturinn reyndi að bjóða einni af ábyrgari aðdáendasíðum Star Wars handritið, en aðstandendur síðurnnar theforce.net létu Lucasfilm vita af málinu.

Nú er um eitt ár í frumsýningu nýju myndarinnar, sem samkvæmt einni frétt hefur fengið heitið "The Rise of the Empire". Þangað til að sú stóra stund rennur upp vonast ég til þess að koma með frekari fregnir af því hvernig gengur.

Þorkell Sigvaldason er stjórnmálafræðinemi.