BÍÓGESTURINN  



Hver er uppáhaldsmynd

Védísar Hervarar Árnadóttur?

Já, uppáhalds myndin mín! Þær eru nú margar myndirnar sem maður hefur séð í gegnum árin og án efa á ég mínar uppáhalds myndir og er þá engin ein sem tekur fyrsta sætið. Þegar ég var yngri var ég vön að horfa á Sound of Music og kunni hana þá gott sem utan að. Hún skipar sérstakan sess í barnaminningunum og nýlega keypti fjölskyldan Sound of Music á DVD og er það hin besta skemmtun. Er ég var svo að þroskast varð á leið minni sú mynd er kennd er við Mozart og er það alveg hreint mögnuð mynd. Tónlistin alveg stórkostleg, enda eftir Mozart. Hún er grípandi, dramatísk og nær sterkt til mín alltaf þegar ég horfi á hana. Fried Green Tomatoes eða Steiktir grænir tómatar er svo önnur mynd sem ég hef aldrei getað gleymt. Hún er gerð eftir bókinni Fried Green Tomatoes at the Whistle Stop Cafe eftir Fannie Flagg og henni leikstýrir Jon Avnet. Leikkonan Jessica Tandy er alveg frábær í þessari mynd. Ég gleymi því heldur aldrei þegar ég sá Clockwork Orange (frá 1971) í fyrsta sinn ... ég sat stjörf lengi vel að reyna að ná mér, hún greip mig alveg í fyrsta "díaloginum". Ekki beint fyrir litlu börnin en hafði svo ótrúlega marga góða punkta sem vert er að taka með sér sem veganesti út í lífið. Stanley Kubrick er auðvitað algjör snillingur og þessi mynd er eina alvöru dæmi þess. Blessuð sé minning hans. Tónlistin í Clockwork Orange er frábær enda Beethoven og Walter Carlos (eða Wendy Carlos eftir að hann fór í kynskiptiaðgerð) þar í aðalhlutverki. Þessi pæling út frá bókinni eftir Anthony Burgess er alveg brilliant útfærð. Eitthvað sem enginn má missa af. Forrest Gump er svo alltaf klassísk, þessi týpíska bandaríska mynd sem nær til flestra og þar á meðal mín. Tom Hanks lék einmitt nýlega í Cast Away sem mér þótti einnig ágætis afþreying. Nýlega sá ég High Fidelity í kjölfar þess að lesa bókina eftir Nick Hornby. Hún fjallar ekki um neitt!!! Það er engin skotbardagi, ekkert alltof mikið drama í gangi og í rauninni ekkert að gerast. Hún fjallar um líf Rob (John Cusack) sem á plötubúð, er hálfgerður aumingi og kemst ekki úr þeirri sálarkreppu "að vera aumingi". Þær leiðir sem hann notar til að réttlæta sjálfan sig og þennan aumingjaskap (sem lýsir sér meðal annars í því að hann getur ekki haldið í kærusturnar sínar sem allar hafa farið frá honum) eru hreint út sagt magnaðar. Þetta er mögnuð mynd og ég hvet hinn hugsandi mann til að drífa sig í að leigja High Fidelity og helst kaupa hana í myndbandasafnið. Enn fremur að kaupa bókina því hún er enn betri skemmtun! Til að toppa þetta alveg þá nefni ég auðvitað Með allt á hreinu sem er ein besta íslenska mynd sem ég hef séð. Skemmtanagildi hennar er óendanlegt og get ég horft á hana aftur og aftur. Þá er listinn kominn og þar inn á milli eru ágætis myndir sem hafa þó ekki náð til mín enn og ég reyni að vera dugleg í að grípa þær gömlu til þess að öðlast meiri þekkingu í kvikmyndaheiminum. En "let's face it, I'm only eighteen!"

Védís Hervör Árnadóttir
söngkona og Verzlunarskólanemi