|


|
Hver er uppáhaldsmynd
Margeirs Péturssonar?
Uppáhaldskvikmynd
mín er Blade Runner frá árinu 1983 gerð af leikstjóranum
Ridley Scott. Þetta var tímamótamynd, leiktjöldin að miklu leyti
gerð í tölvu og í henni birtist skuggaleg framtíðarsýn á það
hvert tækniframfarir muni leiða mannkynið. Ég las
vísindaskáldsögur af kappi sem unglingur og heillaðist því strax
af myndinni. Að mínu mati ber hún af flestum öðrum
framtíðarmyndum, ekki síst fyrir nákvæmni, hugvitssaman
söguþráð og frábæra persónusköpun. Ef einhver hefur efast um
að Harrison Ford gæti leikið, þá efuðust fáir um það eftir
að hafa séð hann í hlutverki vélmennabanans Deckards. Tvö helstu
vélmennin í myndinni eru snilldarlega leikin af þeim Rutger Hauer
og Sean Young. Það vakna fjölmargar spurningar í huga áhorfandans
þegar vísindamönnum tekst að skapa vélmenni af þvílíkri snilld
að það gerir sér ekki grein fyrir að það sé óekta. Rutger
Hauer er ógleymanlegur í hlutverki vígavélmennisins Batty sem
gengur til bardaga með spakmæli á vör. Hann var nefnilega
forritaður þannig að hann getur vitnað í heimsbókmenntirnar við
hvert tækifæri. Söguþráðurinn
gengur út á að flokkur vélmenna hefur sloppið til jarðar, þau
vita að líftími þeirra er að renna út og áætlun þeirra er að
finna vísindamanninn, skapara sinn, til að fá framlengingu á lífi
sínu. Harrison Ford er settur í að stöðva þau og úr verður
æsispennandi kapphlaup. Með snilld sinni í skák (það dregur
auðvitað ekki úr áhuga mínum á myndinni) nær Rutger Hauer settu
marki, en myndinni lýkur ekki við það! Ég sá myndina fyrst
nokkrum sinnum í bíó, en það eru ein 13 ár síðan ég keypti
Blade Runner á spólu og hef séð hana að minnsta kosti 10 sinnum
síðan. Hún var endurgerð fyrir nokkrum árum til að
tæknibrellurnar gætu notið sín betur með betri myndgæðum.
Hvorki vinir mínir né konan mín skildu þetta uppáhald mitt á
myndinni á sínum tíma og hentu jafnvel gaman að. En
óaðfinnanlegur smekkur minn sannaðist enn einu sinni í fyrra
þegar myndin var kjörin ein þeirra tíu bestu á öldinni af
einhverjum sérfræðingum. Miðað við framtíðarmyndir sem nú eru
í boði sýnist mér Blade Runner hafa fyllilega staðist tímans
tönn og jafnvel gott betur.
Margeir
Pétursson,
stórmeistari í
skák og
stjórnarformaður MP Verðbréfa hf.
|
|