|


|
Hver er uppáhaldsmynd
Kolbrúnar Halldórsdóttur?

Þegar
ég sest niður og leiði hugann að kvikmyndunum í lífi
mínu þá er erfitt að slíta sig aftur frá öllum
þeim góðu myndum sem í hugann koma. Þar kennir
margra grasa, mér virðist jafnvel að hægt sé að
skipta lífi mínu niður í ákveðin tímabil eftir
myndunum sem ég hef haft mest dálæti á. Það var
söngleikja-tímabilið þegar varla leið heil helgi
án þess að horft væri á Rocky Horror. Önnur
slík sem fylgt hefur mér gegnum lífið er Jesus
Christ Superstar. Fiðlarinn á þakinu
stendur líka alltaf fyrir sínu, Singing in the
Rain, Galdrakarlinn í Oz og jafnvel Oklahoma!
Svo er það skandinavíska deildin, þar hafa staðið
upp úr myndir á borð við Mit liv som hund, Fucking
Åmål og Tilsammans. Kannski telst Myrkradansarinn
líka til skandinavisku deildarinnar. Svo hef ég haft
dálæti á ákveðnum leikstjórum, þar ber trúlega
hæst Tim Burton. Af myndunum hans verð ég að nefna
Pee-Wee's Big Adventure, Beetlejuice, Edward
Scissorhands..... og þegar ég hugsa um Johnny
Depp í hlutverki Edda Klippikrumlu þá kemur Cry-Baby
auðvitað upp í hugann, -sú frábæra mynd John
Waters, ég horfði á hana upp til agna. Svo hafði
ég gaman af Mike Leigh á tímabili og löngu fyrr
var Franco Zeffirelli uppáhaldið, sú flottasta sem
hann gerði var eflaust Brother sun - Sister moon
eða óperumyndin hans La Traviata, Shakespeare
myndirnar hans voru líka flottar og Jesú-myndin. Af
dramatiskum myndum minnist ég The Crying Game
og af því að ég sá aftur fyrir skemmstu frábæra
mynd með Johnny Depp (sem hefur löngum verið í uppáhaldi)
What's Eating Gilbert Grape. Svo má ég ekki
gleyma Talking Heads tímabilinu, mér fannst True
Stories flott. Ég er líka svolítill
teiknimynda-fíkill, var t.d. að horfa á frábæra
franska teiknimynd um daginn Kirikou og ein úr
þeirri átt er Nightmare Before Christmas.
Eftir þessar vangaveltur held ég að það sé nokkuð
ljóst að ég á enga eiginlega uppáhaldsmynd, bara
ótal dálætismyndir.
Kolbrún
Halldórsdóttir,
alþingismaður
|
|