|

|
Hver er uppáhaldsmynd
Jóns Ólafssonar?
Mary Poppins
er
sennilega sú kvikmynd sem er í mestu uppáhaldi hjá mér. Auðvitað
eru þær margar aðrar sem eru eftirminnilegar en þessi skipar
einhvern sérstakan sess hjá mér. Ég var auðvitað barnungur
er ég sá hana fyrst. Hún heltók mig um leið. Eftir að ég
fór að búa til börn fannst mér upplagt að horfa á kvikmyndina
með þeim. Þau urðu dolfallinn samstundis, alveg eins og pabbi
gamli! Hvað er það við myndina sem gerir hana svo
eftirminnilega? Margt. Tónlistin yndisleg. Þarna er að
finna kómísk lög í bland við tregablandna söngva. Öll lifa þau
góðu lífi enn þann dag í dag. Julie Andrews og Dick Van
Dyke eru óviðjafnanleg í aðalhlutverkunum. Julie er mín
manneskja. Ekki spurning. Frábær söngkona. Gullfalleg í ofanálag
og alltaf svo góð og blíð. Alveg til fyrirmyndar. Fjöllistamaðurinn
Dick Van Dyke dansar auðvitað eins og sérfræðingur þegar svo ber
undir í myndinni og lágstéttarframburðurinn alveg frábær í talmáli
kappans. Eitt atriði stendur upp úr að mínu mati í
kvikmyndinni. Það er þegar þau skötuhjú labba inn í teiknimynd
og dansa í takt við mörgæsir, hænsn, kindur og beljur í dágóða
stund. Mér finnst þetta atriði svo stórkostlegt, sérstaklega
miðað við að það eru í kringum 30 ár síðan myndin var gerð.
Roger Rabbit myndin og Michael Jordan myndin með Kalla kanínu fölna
hreinlega við samanburðinn. Annað var það ekki. Amen.
Jón
Ólafsson
tónlistarmaður
|
|