|
Hver er uppáhaldsmynd
Jóns Kristjánssonar?

Það
vill svo til að ein af þeim myndum sem ég hef
orðið mest snortinn af þegar ég sá hana í
kvikmyndahúsi var sýnd í sjónvarpinu á páskadag.
Það er myndin Póstmaðurinn eða Il Postino á
frummálinu. Þetta er einkar falleg mynd, sem hefur
hins vegar pólitískan undirtón þar sem söguhetjan
verður fyrir barðinu á ofbeldi. Kynni skáldsins
Pablo Neruda og bréfberans, hvernig þau leiða til
þess að hinn næmi ómenntaði sjómaður fer að
fást við skáldskap er ein eftirminnilegasta
atburðarás sem ég hef séð á hvíta tjaldinu og
þau samanstanda af frábærlega vel unnum og fallegum
senum. Þessi mynd er til þess fallin að opna dyrnar
að töfrum skáldskaparins og myndhverfinganna sem
má sjá svo víða í ljóðum m.a. skálda
hérlendis. Mér finnst þessi mynd einn lofsöngur
til fegurðarinnar og skáldskaparins, vináttunnar
og ástarinnar. Hún er sannkallað meistaraverk að
mínu mati.
Ekki er hægt að
minnast á þessa mynd án þess að geta um hinn
frábæra leik Massimo Troisi. Hins vegar varð þetta
svanasöngur hans, því fljótlega eftir að ég
hafði séð myndina þegar hún var sýnd í
kvikmyndahúsum hér las ég um það frétt að hann
væri látinn.
Það er heldur ekki
hægt að skilja við umfjöllun um þessa mynd án
þess að minnast á umgjörðina sem ítalska
þorpið og landslagið veitir sögunni, hið óbrotna
líf fiskimannanna og náttúruskynjun bréfberans og
kráin sem er miðpunktur samfélagsins.
Það er erfitt að
gera upp á milli kvikmynda og ég vil nefna aðra
frábæra mynd sem sýnd var hér í vetur sem var
Buena Vista Social Club. Þessi mynd samanstóð af
stórkostlegum tónleikum frá upphafi til enda,
litríkum og eftirminnilegum karakterum og myndum frá
Havana sem sögðu meira en mörg orð um þessa borg
sem einu sinni var leikvöllur ríkra
Bandaríkjamanna, en skortir nú málningu og viðhald
á hinar glæsilegu villur. Hins vegar skortir ekki
taktinn og sönginn, hann lifir í fólkinu, og ég
segi það satt að mig langar til Kúbu til þess að
upplifa þennan takt. Hvenær eða hvort sú ósk
rætist er ekki gott að segja um.
Jón
Kristjánsson,
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
|