BÍÓGESTURINN  



Hver er uppáhaldsmynd

Gísla Marteins Baldurssonar?

Mín uppáhaldskvikmynd er Annie Hall eftir Woody Allen. Að mínu mati eru aðrar myndir þessa snillings aðeins skugginn af þessari mynd þótt góðar séu. Myndin er bæði frábærlega leikin og ekki síður með einhverjum skemmtilegustu samtölum sem maður sér á hvíta tjaldinu. Ég er sérstaklega hrifinn af upphafsatriðinu þar sem Allen talar beint í myndavél og segir tvo brandara sem honum finnst einkenna líf sitt, og tekur síðan upp þráðinn í lok myndarinnar í stórkostlegu lokaatriði þar sem aðalsöguhetjan Alvy hittir gömlu kærustuna, Annie, á kaffihúsi. Þegar þau standa upp og fara fylgir myndavélin þeim ekki heldur er kyrr á tómu borðinu og maður sér þau ganga í burtu fyrir utan glugga kaffihússins. Yfir þessu heyrist síðan rödd Allens þar sem hann leggur út af atburðum myndarinnar. Frábær mynd sem ég horfi reglulega á.

Af öðrum myndum get ég nefnt að ég er mikill aðdáandi leikstjórans og framleiðandans James L. Brooks og af myndum hans höfðar Broadcast News einna mest til mín. Þar er á ferðinni ein allra besta mynd sem gerð hefur verið um lífið innan veggja sjónvarpsstöðva. Þá var leikstjórinn Rob Reiner lengi í uppáhaldi, en honum hefur farið mjög aftur í seinni tíð, og núna virðist langur vegur frá myndum á borð við Princess Bride, When Harry met Sally og Spinal Tap, svo ég nefni nokkrar.

Gísli Marteinn Baldursson,
fréttamaður