|


|
Hver er uppáhaldsmynd
Guðmundar Árna Stefánssonar?

Besta
bíómyndin! Það eru þær kvikmyndir sem setja mark
sitt til lengri eða skemmri tíma á
tilfinningar,viðhorf og atferli þeirra sem á horfa.
Og það er vissulega mjög misjafnt eftir kvikmyndum
hvort þær yfirleitt skilji nokkuð eftir í vitund
áhorfandans. Og stundum er það bara allt í lagi -
stundaráreiti, skemmtunargildi í núinu. Ekkert
meir.
Með öðrum orðum: Þær eru margar kvikmyndirnar
sem mér hafa fundist góðar og haft áhrif. Og
smekkurinn breytist. Roy Rogers myndirnar frá því
í gamla daga hafa vikið fyrir nýjum stjörnum. Og
því leyni ég ekki að það er ekki aðeins
kvikmyndin sjálf sem grípur mann, heldur ekki
síður þeir leikarar sem bera viðkomandi kvikmyndir
uppi. Þannig er minn maður á hvíta tjaldinu Jack
Nicholson. Gaukshreiðrið var ógleymanleg
kvikmynd þar sem minn maður fór á kostum. En í
gjörólíkum kvikmyndum eins og Terms of Endearment
var hann einnig fantagóður og kvikmyndin þá um
leið. Nicholson klikkar hreinlega ekki.
Góðar myndir? Listinn er langur. En þó miklu
styttri en þegar nefna skal til sögunnar vondar
kvikmyndir. Af betri listanum koma upp í hugann
myndir eins og Don´t look now, Braking the
waves og sú síðasta sem ég sá í bíó - Traffic.
Hún var listavel gerð og efnistökin
nýstárleg.
Og ekki má gleyma íslensku kvikmyndunum. Ég reyni
að sjá þær allar. Og sumar þær bestu standast
prýðilega samjöfnuð við það besta úti í hinum
stóra heimi.
Guðmundur
Árni Stefánsson
alþingismaður
|
|