BÍÓGESTURINN  



Hver er uppáhaldsmynd
Árna Sigurjónssonar?

Það er alls ekki svo einfalt mál að velja eina uppáhalds kvikmynd, í rauninni á ég frekar uppáhalds leikara. Þó ætla ég að nefna nokkrar myndir sem hafa, af einhverjum ástæðum, setið eftir í huga mér. Af einhverjum ástæðum hitta ákveðnar framhaldskvikmyndir veikan blett á mér, kannski er ég bara klisjukall. Myndir eins og Stjörnustríð (Star Wars) og Guðfaðirinn (The Godfather) eru að mínu viti meistarastykki. Fyrstu þrjár Stjörnustríðsmyndirnar (IV-VI) eru hver annarri betri og ég get horft á þær aftur og aftur án þess að þær missi skemmtanagildi sitt. Sú nýjasta (I - The Phantom Menace) var mögnuð en fangaði af einhverjum ástæðum ekki alveg þann anda sem sveif yfir vötnum í fyrri myndunum. Ég er því einn af þeim sem bíða spenntir eftir síðustu tveimur. Yfirburðaleikur Harrison Fords og Mark Hammills, tæknibrellur síns tíma og heillandi saga gera gæfumuninn. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um Guðföður-seríuna, allt frá frumsýningu þeirra mynda hafa gagnrýnendur keppst við að klína á þær lofi. Mitt ískalda mat er þó að fyrsta myndin beri. Líf mafíósanna og fjölskyldna þeirra er að mörgu leyti heillandi efni og langdregin atriðin koma slíkum pælingum vel til skila. Ævintýramyndir hafa alla tíð heillað mig og söguhetjan Indiana Jones (Harrison Ford) situr þar í toppsætinu. Það er bara eitthvað við dulúðina sem óneitanlega fylgir honum, hvern langar ekki til að verða fornleifafræðingur þegar horft er á myndina? Sem dæmi um nýlegri myndir sem ég hef tekið ástfóstri við má nefna Forrest Gump, sem allir hljóta að vera sammála um að sé frábær, Matrix og La vita e bella, með ítalska háðfuglinum Roberto Benigni, sem er ein besta mynd síðustu áratuga, svo einfalt er það. Sú mynd sem fékk flesta Óskara á síðustu verðlaunahátíð, Gladiator, fellur einnig í þennan flokk, Russell Crowe sýnir stórleik í einni bestu mynd síðasta árs. Hvað íslenskar myndir varðar þá kemur aðeins ein til greina. Með allt á hreinu er með hælana þar sem aðrir hafa ekki enn komist með tærnar.

Árni Sigurjónsson,
dagskrárgerðarmaður í morgunútvarpi Rásar 2