|
Hver er uppáhaldsmynd
Andreu Róbertsdóttur?
Ég er í klípu! Það er nú alveg vonlaust fyrir mig að velja
uppáhaldsbíómyndina mína. Allt þetta uppáhalds-eitthvað fer nú
bara eftir stund og stað en ég skal gera mitt besta. Ég var oft í
pössun hjá ömmu minni þegar ég var lítil og ótrúlegt en satt
átti hún frábært vídeóspólusafn. Ég var því bara í góðum
gír og horfði aftur og aftur á Sound of Music og ABBA The Movie.
ABBA sigraði heiminn eftir að hafa unnið Júró árið 1974. Í
myndinni er fylgst með goðunum á tónleikaferðalagi og einhverjum
blaðamanni sem var alveg sveittur við það að reyna að ná
viðtali við goðin. Búningarnir og sviðsframkoman tær snilld og
þetta ólst ég upp við… guð minn góður! Og svo kom gelgjan og
mikið af henni. Myndir eins og Sixteen Candles, Pretty Woman og
Coming to America eru í miklu uppáhaldi hjá okkur stelpunum enda
"meistarastykki". Við erum enn með frasana á hreinu og
saumaklúbburinn heitir meira að segja Randy Whatson eftir einni
persónu úr Coming to America. Og talandi um frasa, hvar hefði ég
verið án kvikmyndarinnar Með allt á hreinu? Hana kunna nú allir
jafn vel og stunurnar í When Harry Met Sally.
Sumar kvikmyndir eru bíómyndir og aðrar vídeómyndir. Sumar
verður maður að sjá í bíói, eins og t.d. Moulin Rouge.
Frábærir leikarar, tónlist, búningar, klipping og tökur. Ég var
alveg eftir mig þegar myndinni lauk. Fór nefnilega á forsýninguna
og vissi ekkert um myndina. Það er nú líka annað, mér finnst
frekar dapurt að hafa lesið einhverja dóma um mynd áður en ég
sé hana í bíói. Þessar stjörnur flækjast bara fyrir mér.
Önnur eftirminnileg bíóferð var þegar ég sá Life Is Beautiful.
Þetta er frábær mynd sem spilar á allan tilfinningaskalann. Ég
sat í sætinu mínu og skellihló og grenjaði til skiptis.
Ótrúlega fín mynd.
Forrest Gump, LA Confidential, Last Tango in Paris, Lion King, Dirty
Dancing, Godfather myndirnar, Pulp Fiction, Leyndarmál og lygar,
Fargo og Festen eru myndir sem ég held t.d. mikið upp á. Ég skelli
þeim stundum í tækið og virðist aldrei fá nóg.
Eitt er á hreinu, það er alveg sama hversu myndin er skemmtileg
eða skelfileg … poppið er alltaf ómissandi í bíóinu og
ógeðslega gott!Ps. Brad Pitt er ógeðslega flottur í Fight Club -
úllalla!!!
Andrea
Róbertsdóttir
|