FRÉTTIR  



Frumsýningar helgarinnar
Um helgina verður frumsýnd myndin Say it isn´t So sem er framleidd af Farrelly-bræðrunum (There´s Something About Mary, Dumb and Dumber, Me, Myself and Irene) og fjallar um ungan mann, Chris Klein (American Pie), sem telur sig hafa fundið ástina í lífinu, Heather Graham (Austin Powers: The Spy Who Shagged Me, Boogie Nights), en þá kemur babb í bátinn. Myndin Spy Kids verður einnig frumsýnd en hún fjallar um tvo krakka sem komast að því að foreldrar þeirra (Antonio Banderas og Carla Gugino) eru njósnarar sem þurfa á hjálp þeirra að halda til að bjarga heiminum. Leikstjóri er hinn frábæri Robert Rodriguez (From Dusk till Dawn, The Faculty). Spot er ný gamansöm barnamynd sem frumsýnd verður en hún fjallar um bréfbera sem tekur að sér flækingshund sem er í eigu FBI og er notaður til að þefa uppi eiturlyf. Aðalhlutverk er í höndum David Arquette (Dewey í Scream-myndunum). Kvikmyndin Along Came a Spider er sjálfstætt framhald myndarinnar Kiss the Girls en þær byggja báðar á bókum um rannsóknarlögreglumanninn Alex Cross eftir rithöfundinn James Patterson. Alex (Morgan Freeman) snýr aftur til að hafa hendur í hári mannræningja sem svífst einskis. Leikstjóri er Lee Tamahori (Once Were Warriors).

Topp tíu í Bandaríkjunum helgina 25.-28. maí 2001.
1.   Pearl Harbor (2001).
2.   Shrek (2001).
3.   The Mummy Returns (2001).
4.   A Knight´s Tale (2001).
5.   Angel Eyes (2001).
6.   Bridget Jones´s Diary (2001).
7.   Along Came a Spider (2001).
8.   Memento (2000).
9.   Blow (2001).
10. Driven (2001).

Eina frumsýnda myndin sem er inni á topp tíu fyrir síðustu helgi er myndin Pearl Harbor sem frumsýnd verður á Íslandi 8. júní og fjallar um árás Japana á flotastöð Bandaríkjamanna í Pearl Harbor á Hawaii í síðari heimsstyrjöldinni. Með aðalhlutverk fara Ben Affleck (Armageddon), Josh Hartnett (The Faculty) og Kate Beckinsale (Shooting Fish, The Last Days of Disco). Leikstjóri er Michael Bay (The Rock, Bad Boys, Armageddon) og framleiðandi er Jerry Bruckheimer (Beverly Hills Cop, Top Gun, The Rock, Con Air, Armageddon o.fl. o.fl.). Myndin tók inn um 70 milljónir dollara og er það afar nálægt meti því sem myndin Jurassic Park setti árið 1993 þegar hún tók inn rúmlega 90 milljónir dollara sína fyrstu sýningarhelgi sem var einmitt "memorial day" helgin sem er þriggja daga helgi í Bandaríkjunum og sú helgi þegar stærsta mynd sumarsins er venjulega frumsýnd líkt og í ár.

Frumsýningar helgarinnar
Frumsýningar helgarinnar eru kvikmyndirnar Malena, Cherry Falls, Memento, Way of the Gun og The Mexican. Myndin Malena er nýjasta mynd ítalska leikstjórans Giuseppe Tornatore (Cinema Paradiso). Um er að ræða fallega þroskasögu ungs drengs í síðari heimsstyrjöldinni. Með aðalhlutverk fer m.a. hin fagra Monica Bellucci (Under Suspicion, The Matrix 2). The Mexican er nýjasta mynd stórstjarnanna Brad Pitt og Juliu Roberts. Brad leikur glæpamann sem Júlía er að reyna að gera að betri manni. Auk þeirra leikur hin frábæri James Gandolfini (Tony Soprano í The Sopranos) stórt hlutverk. Hryllingsspennumyndin Cherry Falls fjallar um morðingja sem drepur hreinar meyjar í smábæ í Bandaríkjunum. Til að sleppa af lista morðingjas er augljóslega aðeins ein leið fær. Hlutverkin eru flest í höndum lítt þekktra ungra leikara en auk þeirra bregður þarna fyrir hinum frábæra Jay Mohr (Mafia!, Go, sjónvarpsþættirnir Action) og Michael Biehn (Art of War, Terminator). Þá er frumsýnd spennumyndin Way of the Gun með Benico Del Toro. Að lokum skal nefna eina dularfyllstu mynd helgarinnar sem nefnist Memento og er með þeim Guy Pearce (sápan Neighbours, L.A. Confidential) og Carrie-Anne Moss (The Matrix, Red Planet, Chocolat) í aðalhlutverkum. Þetta er spennumynd sem er æskilegt að vita sem minnst um fyrirfram til þess að hún komi manni á óvart.
27. apríl 2001


Miami Vice á hvíta tjaldið?
Fram kemur í viðtali í Chicago Sun-Times við leikarann Edward James Olmos (Selena), sem gerði garðinn frægan á níunda áratugnum í hlutverki Martin Castillo í lögregluþáttunum Miami Vice, að undirbúningur að kvikmyndaútgáfu þáttanna sem gerðu Don Johnson heimsfrægan hafi verið í undirbúningi hjá Universal um nokkurt skeið. Olmos segist hafa tekið þátt í því að sannfæra Universal um framleiðslu slíkrar myndar í eitt og hálft ár og telur hann líklegt að slík mynd yrði framleidd á næstu árum. Olmos tekur fram að endursýningar á þáttunum sé stöðugt í gangi víðsvegar um heiminn og þátturinn sýndur a.m.k. tvisvar á dag hverjum einhversstaðar í Bandaríkjunum og jafnvel oftar í öðrum löndum. Don og Olmos eru víst mjög spenntir fyrir hugmyndinni en leikarinnn Philip Michael Thomas, sem lék félaga Dons Rico Tubbs, er ekki alveg viss. Ein hugmyndin er að fá upphaflega framleiðanda þáttanna, Michael Mann (Heat, The Insider) til að leikstýra og leyfa honum að gera alvarlega Miami Vice mynd fyrir nýja áhorfendur en ekkert grín eins og með Charlie´s Angels og The Brady Buch þar sem í raun var grínast með gamla vinsæla sjónvarpsþætti.
Heimild: Filmforce
18. apríl 2001


Topp tíu í Bandaríkjunum
Topp tíu listinn í Bandaríkjunum helgina 13. - 15. apríl 2001.

1. Spy Kids (2001).
2. Along Came a Spider (2001).
3. Bridget Jones´s Diary (2001).
4. Joe Dirt (2001).
5. Blow (2001).
6. Kingdom Come (2001).
7. Josie and the Pussycats (2001).
8. Pokémon 3: The Movie (2001).
9. Someone Like You (2001).
10. Enemy at the Gates (2001).

Frumsýndar myndir þessa helgina voru Bridget Jones's Diary, Joe Dirt, Kingdom Come og Josie and the Pussycats. Sú síðastnefnda náði sjöunda sæti. Myndin er byggð á gamalli teiknimyndaseríu sem fjallar um kvennahljómsveit sem lendir í ýmsum ævintýrum. Í aðalhlutverkum eru m.a. Rachael Leigh Cooke (She´s All That). Myndin sem náði sjötta sæti fyrstu sýningarhelgi sína var Kingdom Come sem fjallar um vinahóp sem kemur saman þegar andstyggileg persóna úr þeirra hópi lætur lífið. Með aðalhlutverk fara LL Cool J, Jada Pinkett (frú Will Smith) og Toni Braxton. Myndin sem hafnaði í fjórða sæti sína fyrstu sýningarhelgi heitir Joe Dirt og er nýjasta gamanmynd Davids Spade (Just Shoot Me, Tommy Boy, Black Sheep) en auk hans koma fram í myndinni þeir Dennis Miller (Dennis Miller Live á HBO, Murder at 1600), Christopher Walken (True Romance, Pulp Fiction) og Kid Rock. Sú frumsýnda mynd sem náði hæst var svo Bridget Jones´s Diary sem náði þriðja sæti og tókst ekki að velta Spy Kids úr toppsætinu, en hún hélt því sæti þriðju helgina í röð. Myndin byggir á samnefndri bók um unga, einstæða konu á Englandi og daglegt líf hennar. Með hlutverk Bridgetar fer bandaríska leikkonan Renée Zellweger (Nurse Betty, Me, Myself and Irene) en á móti henni leikur Hugh Grant (Notting Hill, Four Weddings and a Funeral). Richard Curtis (Notting Hill, Four Weddings and a Funeral, Blackadder, Mr. Bean) skrifaði handritið.
17. apríl 2001

American Pschyco II?
Samkvæmt frétt á netsíðunni Filmforce er kvikmyndafyrirtækið Lions Gate að undirbúa framleiðslu á myndinni American Psycho II og hefur leikonan Mila Kunis (That 70's Show) samþykkt að taka að sér aðalhlutverkið. Handritið verður m.a. skrifað af Mary Harron sem leikstýrði fyrri myndinni en þar fór Christina Bale með hlutverk geðsjúka morðingjans Patrick Bateman. Upphaflega myndin var byggð á umdeildri skáldsögu rithöfundarins Bret Easton Ellis. Það kemur fram í The Hollywood Reporter að Lions Gate sé að fara í gegnum nokkur handrit til að vinna úr framhald af upprunalegu myndinni. Tökur eiga að hefjast um miðjan maí í Toronto í Kanada en ásamt Harron eru handritshöfundarnir Karen Craig og Alex Sanger að vinna að lokaútgáfu myndarinnar. Lions Gate fullyrðir að tökum verið lokið áður en verkfall leikara í Bandaríkjunum skellur á þann 30. júní. Myndin verður seld á næstu kvikmyndahátíð í Cannes. Kostnaður við gerð myndarinnar verður um 10 milljónir dollara. Kunis leikur námskonu í háskóla sem lifir af árás af hendi Bateman. Hún verður síðar hrifin af einum prófessorana og sækist eftir að næla í hann hvað sem það kostar. Michael Paseornek, forseti Lions Gate, fullyrðir að myndin verði í anda þeirrar fyrri. Bateman kemur að vísu afar lítið við sögu í þessari mynd. Það má hins vegar minna á að Halloween serían hófst á góðri mynd en þær sem fylgdu í kjölfarið hafa verið fremur slakar. Við skulum vona að svo verði ekki í þetta sinn.
Heimild: Filmforce
12. apríl 2001


Zeta-Jones í nýrri mynd
Eiginkona Michaels Douglas, leikkonan Catherine Zeta-Jones, hefur nú samkvæmt Variety tekið að sér hlutverk í endurgerð á annarri breskri sjónvarpsseríu. Síðasta mynd hennar, Traffic, var eins og kunnugt er endurgerð á breskri míní-seríu en hún hefur nú tekið að sér hlutverk í myndinni Trust sem mun byggð á annarri seríu. Leikstjórinn Terry George (Some Mother´s Son, Hart´s War) mun að öllum líkindum skrifa handritið. Trust er "kynþokkafullur tryllir" þar sem Zeta-Jones leikur valdamikinn lögfræðing sem verður að verja eiginmann sinn sem er geðlæknir og hefur verið sakaður um hrottafengið morð. Atburðarásin í myndinni verður færð frá London til New York. Enn hafa ekki verið ráðnir fleiri leikarar eða leikstjóri. Zeta-Jones og bróðir hennar Lyndon Jones munu framleiða ásamt framleiðendum upphaflegu sjónvarpsseríunnar.
Heimild: Filmforce
12. apríl 2001


Verður Russell Crowe næsti Bond?
Samkvæmt fréttum á MSNBC er talið að Russell Crowe sé alvarlega að íhuga að taka að sér hlutverk njósnara hennar hátignar James Bond í 21. Bond-myndinni. Fregnir herma að framleiðendur hafi mikinn áhuga á því að fá hann í það hlutverk. Einnig er talið að framleiðendur vilji losna við Pierce Brosnan þar sem hann biður um meira en 20 milljónir dollara og krefst þess að hafa hönd í bagga með klippingu á myndinni auk þess sem hann hefur nöldrað í fjölmiðlum um að hann vilji losna úr viðjum hlutverksins. Aðrar heimildir herma að Crowe muni gefa Bond nýja ímynd. Hvað með það þó hann sé ekki enskur. Connery er skoskur, Brosnan er írskur og Lazenby er ástrali. Crowe er tæknilega séð fæddur í Nýja Sjálandi en hann er ástralskur ríkisborgari og hefur búið í Ástralíu frá unga aldri. Landi Crowe, Hugh Jackman (Wolverine í X-Men) hefur einnig verið nefndur en meiri líkur eru taldar á því að Crowe komi til greina. Framleiðendur Bond-myndanna svöruðu að Brosnan myndi leika í a.m.k. einni mynd í viðbót og þegar spurt var um orðróminn um ráðningu Crowe var fátt um svör.
Heimild: Filmforce
10. apríl 2001


Ashley Judd sem Kattarkonan
Nýjasta myndin sem Warner Bros er að hefja framleiðslu á bráðlega fjallar um einn erkióvin Batmans, Catwoman. Michelle Pfeiffer lék alræmda tálkvendið í myndinni Batman Returns árið 1992 en nú eru taldar góðar líkur á því að Ashley Judd muni taka að sér hlutverkið í nýju myndinni. Julia Roberts hefur verið nefnd í sambandi við þessa nýju mynd en líklegra er talið að Judd hreppi hnossið. Auk Catwoman eru tvær aðrar Batman tengdar myndir í undirbúningi. Það eru Batman: Year One, sem jafnvel Darren Aronofsky (Pi) muni leikstýra, og Batman Beyond sem tengist samnefndri teiknimyndaseríu um leðurblökuhetjuna. Í dag er þó enn alls óvíst hver þessara mynda muni að endingu verða framleidd ef ekki allar þrjár.
3. apríl 2001

FRUMSÝNINGAR UM HELGINA
The Emperor´s New Groove eða Nýi stíllinn keisarans verður frumsýnd í Regnboganum og Sam-Bíóunum. Um er að ræða teiknimynd frá Walt Disney. Myndin verður sýnd bæði með ensku og íslensku tali. Þeir sem tala inn á ensku útgáfuna eru m.a. David Spade (Just Shoot Me) og John Goodman. Myndin fjallar um keisara sem er breytt í lamadýr af fyrrverandi ráðgjafa sínum og reynir með hjálp lamahirðis að komast heim og bjarga málunum. Kvikmyndin Finding Forrester með þeim Sean Connery, F. Murray Abraham, Busta Rhymes og hinum unga Robert Brown í aðalhlutverki verður frumsýnd um helgina í Stjörnubíó og Sam-Bíóunum. Myndin fjallar um ungan svartan dreng sem er góður í körfubolta en ekki síðri rithöfundur sem fær hjálp frá frægum rithöfundi. Leikstjóri er Gus Van Sant (Good Will Hunting). Í Sam-Bíóunum verður frumsýnd gamanmyndin Miss Congeniality með Söndru Bullock, Benjamin Bratt (hr. Julia Roberts), Michael Caine og gamla jaxlinum William Shatner (Kirk kapteinn) í aðalhlutverkum. Myndin fjallar um ódannaða unga FBI konu (Bullock) sem þarf að bregða sér í hlutverk fegurðardrottningar í fegurðarsamkeppni til að koma í veg fyrir að brjálæðingur sprengi upp keppnina sjálfa.

STYSTA ÞAKKARRÆÐAN
Michael Dudok de Wit, sem hlaut óskarsverðlaun síðasta sunnudag fyrir bestu stuttu teiknimyndina, vann einnig hágæðasjónvarp fyrir að flytja stystu þakkarræðuna. Ræða Michaels var aðeins 18 sekúndna löng. Hann ætlar hins vegar ekki að eiga sjónvarpstækið heldur hefur hann ákveðið að gefa það til góðgerðarsamtaka barna. Framleiðandi óskarsútstendingarinnar, Gil Cates, hafði í gamni gefið það loforð í árlegum hádegisverði þar sem hinum tilnefndu var boðið að hann myndi gefa þeim sem héldi stystu ræðuna sjónvarp. Sagði hann það gert til að hann gæti betur stjórnað lengd útsendingarinnar. Þakkir Dudoks voru um það bil 9 sekúndum styttri en hjá þeim sem var með næst stystu ræðuna. Sá heitir Tim Yip sem vann fyrir listræna stjórnun á myndinni Crouching Tiger, Hidden Dragon. Michael segist ekki hafa skrifað stystu ræðuna til að vinna sjónvarpið því hann eigi þau nokkur. Hann hafi skrifað hana til þess að segja það sem hann þurfti að segja, hvorki meira né minna.

SANNAR LYGAR II
Tom Arnold hefur nú tjáð sig um undirbúninginn að gerð myndarinnar True Lies 2 sem sögusagnir hafa gengið um í nokkurn tíma. Í nýlegu viðtali á netinu staðfesti sagði hann einfaldlega að þegar leyst verði úr yfirvofandi verkfalli leikara og handritshöfunda í Hollywood verði hafist handa við tökur á True Lies 2. Tom lét líka hafa eftir sér að handritið að framhaldinu sé betra en handrit fyrri myndarinnar. Þegar hann var spurður um söguþráðinn sagðist hann ekkert geta sagt því þá myndi Jim (Cameron) drepa hann. Þessi ummæli draga úr trúverðugleika fyrri frétta um að Cameron komi ekki nálægt framhaldinu. Þegar Tom var spurður beint um mögulega þátttöku Camerons vildi hann ekki staðfesta neitt. Hins vegar gat hann staðfest að Arnold Schwarzenegger og Jamie Lee Curtis myndu bæði leika í framhaldinu.
Heimild: Filmforce

KÖTTURINN MEÐ HÖTTINN Á HVÍTA TJALDIÐ?
Eftir velgengni myndarinnar The Grinch er kvikmyndafyrirtækið Imagine Entertainment að undirbúa aðra kvikmynd byggða á barnabók eftir Dr. Seuss. Þar er um að ræða bókina The Cat in the Hat eða Kötturinn með höttinn. Kvikmyndin hefur verið í undirbúningi síðan 1997 þegar DreamWorks keypti réttinn er farið að huga að framkvæmdinni. Framleiðandinn Brian Grazer var spurður hvort myndin yrði svipuð The Grinch en segir hann myndirnar verða mjög ólíkar. Tæknibrellur muni hins vegar leika stórt hlutverk í myndinni. Þegar Grazer var spurður um möguleikana á því að Tim Allen (Home Improvement) tæki að sér þetta hlutverk gaf hann lítið upp en taldi að Allen myndi henta vel í hlutverk kattarins. Ekki er talið líklegt að Ron Howard (Apollo 13, The Grinch) muni leikstýra þessari mynd en þó kann það að hafa breyst eftir velgengni Grinch. Handrit það sem nú er í vinnslu fyrir Cat in the Hat er eftir þá Alec Berg, Jeff Schaeffer og David Mandel sem skrifuðu handritið af Grinch og unnu lengi við grínþáttinn vinsæla um Seinfeld.
Heimild: Filmforce

CHOCOLAT, TRAFFIC OG THE GIFT FRUMSÝNDAR UM HELGINA
Nú um helgina verða 3 kvikmyndir frumsýndar. Fyrsta myndin heitir The Gift og er spennumynd með Cate Blanchett (Elizabeth), Giovanni Ribisi (Gone in 60 Seconds, Saving Private Ryan) og Keanu Reeves (The Matrix) í aðalhlutverkum. Myndin fjallar um skyggna konu sem er fenginn til að hafa upp á ungri konu sem hefur horfið á dularfullan hátt. Handritið er eftir leikstjórann Billy Bob Thornton (Slind Blade) og myndinni er leikstýrt af meistara Sam Raimi (Evil Dead myndirnar, A Simple Plan). Önnur myndin er Chocolat sem var á dögunum tilnefnd til fimm óskarsverðlauna, m.a. sem besta myndin, besta handrit, besta leikkona í aðalhlutverki (Juliette Binoche) og besta leikkona í aukahlutverki (Judi Dench). Auk þeirra leika í myndinni þau Johnny Depp og Lena Olin. Myndin fjallar um unga konu sem opnar konfektbúð í smáþorpi í Frakklandi og hræri upp í siðfáguðu liðinu. Leikstjóri er hinn sænski Lasse Hallström (The Cider House Rules, What´s Eating Gilbert Grape?, Mit liv som hund). Myndin er byggð á skáldsögu eftir rithöfundinn Joanne Harris. Þriðja myndin er svo Traffic sem byggir á breskri þáttaröð og fjallar um baráttuna gegn eiturlyfjum frá nokkrum sjónarhornum. Með hlutverk í myndinni fara hjónakornin Michael Douglas og Catherine Zeta-Jones ásamt þeim Benicio Del Toro, sem hlaut tilnefningu til óskarsverðlauna sem besti leikari í aukahlutverki, og Dennis Quaid (Any Given Sunday og fyrrverandi eiginmaður Meg Ryan sem hugsar án efa hlýtt til Russell Crowe). Myndin er í leikstjórn snillingsins Steven Soderbergh (Sex, Lies and Videotape, Out of Sight, Erin Brockovich) en hann er í ár tilnefndur sem besti leikstjóri fyrir þessa mynd ásamt myndinni um hana Erin. Myndin Traffic er tilnefnd til fimm óskarsverðlauna.

TÍU VINSÆLUSTU MYNDIRNAR Í BANDARÍKJUNUM HELGINA 9.-11. MARS
1. The Mexican (2001).
2. Fifteen Minutes (2001).
3. See Spot Run (2001).
4. Hannibal (2001).
5. Down to Earth (2001).
6. Crouching Tiger, Hidden Dragon (2000).
7. Get Over It (2001).
8. Traffic (2000).
9. Chocolat (2000).
10. Recess: School´s Out (2001).

Tvær nýjar myndir eru á topp tíu þessa helgina. Annars vegar er það myndin Get Over It sem lenti í sjöunda sæti. Þetta er rómatísk gamanmynd með Kirsten Dunst (Bring It On, Interview with the Vampire) í aðalhlutverki. Hin myndin heitir Fifteen Minutes og lenti í öðru sæti og varð þar að lúta í lægra haldi fyrir The Mexican með Juliu Roberts og Brad Pitt sem hélt fyrsta sætinu. Fifteen Minutes er spennumynd með þeim Robert De Niro, Edward Burns (She´s the One, Saving Private Ryan) og Kelsey Grammer (Frasier).

ÓSKARSVERÐLAUNATILNEFNINGAR
Björk Guðmundsdóttir var tilnefnd til verðlauna fyrir lagið "I've Seen it All" úr "Dancer in the Dark". Þær myndir sem munu keppa um titilinn besta mynd ársins eru "Chocolat", "Crouching Tiger, Hidden Dragon", "Erin Brockovich", "Gladiator" og "Traffic". SKOÐA TILNEFNINGARNAR

ÍSLENDINGUR Í STÓRMYND
Íslenski leikarinn Ingvar E. Sigurðsson er nú á leið í æfingabúðir í Kanada til að undirbúa sig fyrir hlutverk í stórri Hollywood-mynd. Sagt var frá þessu í fréttum RÚV og í Kastljósi. Myndin heitir K-19: The Widowmaker og er í leikstjórn Kathryn Bigelow (Strange Days). Ingvar mun þar væntanlega leika á móti stórstjörnum á borð við Harrison Ford og Liam Neeson. Myndin fjallar um fyrsta rússneska kjarnorkukafbátinn, sem varð fyrir bilun í kjarnakljúfi í jómfrúrferð sinni í Norður-Atlandshafi árið 1961. Þeir sem um borð voru, undir stjórn skipherrans (sem Ford leikur) reyna því að koma í veg fyrir kjarnorkuslys sem hefði getað komið af stað heimsstyrjöld milli risaveldanna. Sigurjón Sighvatsson er meðal framleiðenda myndarinnar og áætlað er að hún verði tekinn upp í Rússlandi og jafnvel á Íslandi.

Umsjón: Guðjón Helgason