|
Iron Man |
|
|
|
Jon Favreau leikstýrir myndinni og
virðist skilja hvernig á að gera góða mynd.
Fæstar ofurhetjumyndir síðustu ára hafa verið
góðar og í flestum tilfellum virðast sömu
mistökin vera gerð í þeim öllum, þ.e. ekki nógu
mikil áhersla er lögð á persónusköpun og
raunveruleika.
Iron Man er hins vegar vel skrifuð og vel útpæld
og fær Favreau prik fyrir það.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
Forgetting Sarah
Marshall |
|
|
|
Alvarleikinn er víðs fjarri og
brandararnir alltaf á mörkunum, en virka flestir
vel. Salurinn tók þó misvel í myndina, enda voru
eflaust sumir þarna að leita að væminni
rómantískri gamanmynd, en þeir fóru fýluferð.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
Fools Gold |
|
|
|
Ástarævintýri þeirra er þó ótrúverðugt,
söguþráðurinn almennt afar ófrumlegur og jafnvel
kjánalegur, sem og framvindan, en það er þó
eitthvað skemmtilega heillandi og sumarlegt við
þessa annars klisjukenndu mynd.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
Definitely, Maybe |
|
|
|
Þetta er mjög skemmtileg rómantísk
gamanmynd sem allir ættu að geta haft gaman af.
Í heildina á litið er Definitely Mabe skemmtileg
mynd sem heldur áhuga manns út allan tímann.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
The Ruins |
|
|
|
Það má segja að
The Ruins sé nokkuð týpísk unglingahrollvekja
sem byggist að hluta á bregðuatriðum og að hluta
á ógeði.
Það fer ekki mikið fyrir persónusköpun eða vel
skrifuðu handriti enda er hér um formúlumynd að
ræða.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
Lars and the Real
Girl |
|
|
|
Ryan Gosling sýnir
frábæran leik í aðalhlutverkinu og aðrir minna
þekktir leikarar standa sig einnig með prýði.
Leikstjóranum Craig Gillespie tekst að byggja
upp mikla samúð með aðalpersónunni og segja
þessa áhrifamiklu sögu með lágstemmdum og
heillandi hætti.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
Stóra planið |
|
|
|
Stóra
planið er ósköp saklaus og skemmtileg mynd.
Handritið er vel
skrifað og myndinni er vel leikstýrt.
Auga leikstjórans
fyrir smáatriðum er greinilega næmt en það eru
þessi smátriði sem gera myndina þetta
skemmtilega.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
10.000 B.C. |
|
|
|
Roland Emmerich er leikstjóri
myndarinnar en hann hefur áður leikstýrt t.d.
Independence Day, Godzilla og The Day After
Tomorrow.
Hann er mjög mistækur leikstjóri, reynir ávallt
að höfða til allra og fyrir vikið verða myndir
hans oft á tíðum algjör grautur, tæknilega vel
gerður grautur.
10.000 B.C. er engin undantekning á því, algjör
grautur.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
In Bruges |
|
|
|
Myndin virðist á köflum ansi stefnulaus
og jafnvel langdregin þrátt fyrir að vera
einungis rúmar 100 mínútur. Hún er engu að síður
ágæt skemmtun, fyndin og spennandi á köflum.
Sævar Guðmundsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
El Orfanato |
|
|
|
El Orfanato hefði
vel getað sómað sér á síðustu
óskarsverðlaunahátíð og hefði fyllilega getað
slegið þeim myndum sem þar var að finna við.
Hér er á ferðinni ein besta hrollvekja
síðari ára og ein besta mynd síðasta árs.
Ég
hvet alla til að skella sér á þessa og þakka
Græna ljósinu fyrir að færa okkur hana.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
Scaphandre er le
papillon |
|
|
|
Þvílík mynd. Hún fékk
ein Óskarsverðlaun og tvenn Golden Globe
verðlaun og gleymist seint eða aldrei.
Katrín Guðjónsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
27 Dresses |
|
|
|
Það er í sjálfu sér
hægt að gera ágætar formúlumyndir í þessum anda,
en stundum misheppnast formúlan illilega og það
virðist hafa gerst hér hjá hinum lítt reynda
leikstjóra Anne Fletcher. Stelpur, í
guðanna bænum ekki draga kærastana ykkar með á
þessa mynd því þá munu þeir sennilega aldrei
vilja sjá aðra rómantíska gamanmynd á ævinni.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
There Will Be Blood |
|
|
|
Boðskapurinn er nokkurn veginn sá sami
og í Citizen Kane, en þessar tvær myndir eiga
margt sameiginlegt.
Charles Foster Kane og Daniel Plainview eru alls
ekki svo ólíka persónur.
Líkt og Orson Welles í Citizen Kane reynir
leikstjórinn Paul Thomas Anderson að varpa ljósi
á þessa persónu, Daniel Plainview sem er
margslungnari en flestir.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
|
|
|
Juno |
|
|
|
Sagan er
bráðskemmtileg frá upphafi til enda, fyndin en
þó með alvarlegum undirtónum. Juno er öðruvísi
mynd sem enginn ætti að missa af.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
The Kite Runner |
|
|
|
Það er óhætt að segja að
myndin skilji engan eftir ósnortinn, sagan
fylgir áhorfandanum löngu eftir að hann hefur
yfirgefið kvikmyndahúsið. Kvikmyndaárið byrjar
sannarlega vel og það kæmi ekki á óvart þó að
þessi frábæra mynd verði ein besta, ef ekki
hreinlega besta, mynd ársins hér á landi. Það
verður að minnsta kosti erfitt að slá henni við.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
Before the Devil
Knows You're Dead |
|
|
|
Sagan er hæg og
nokkuð fyrirsjáanleg og jafnvel ótrúverðug þegar
á líður. Það er hins vegar óskandi að Lumet
haldi áfram kvikmyndagerð
fram á tíræðisaldur að minnsta kosti.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
No Country for Old
Men |
|
|
|
Svartur húmor bræðranna er á sínum stað
og söguþráðurinn góður. Helsti gallinn við
myndina er lengdin, hún er rúmlega tveir tímar
en hefði virkað betur undir tveimur tímum.
Á heildina litið er þetta þó besta mynd Coen
bræðra í langan tíma, frábær kvikmyndagerð.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
Sweeny Todd |
|
|
|
Það er ekki annað hægt en að lofa þessa
uppfærslu hans Tim Burton.
Stíll hans sem leikstjóra fellur afar vel að
söngleiknum, líklega hefðu fáir aðrir getað fært
þetta stykki á hvíta tjaldið.
Tim
Burton plús Sweeny Todd er eldfim blanda,
virkilega skemmtileg kvikmynd, vel sungin og
aldrei leiðinleg.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
|
|
|
Cloverfield |
|

|
|
Cloverfield vakti mikla athygli í
Bandaríkjunum í upphafi árs en hér er þó ekki á
ferðinni nein tímamótamynd. Það er lítið sem
kemur á óvart, því miður. Það er svo eins og
myndin haldi áfram þegar bíógestir koma út úr
bíósalnum í íslenskt febrúaróveðrið, og
skrímslin virðast leynast í öllum skúmaskotum.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
Charlie Wilson's War |
|
|
|
Charlie Wilsons War fjallar um stjórnmál
og stríð en er á sama tíma mjög létt og
skemmtileg og á köflum stórfyndin.
Að
nokkru leyti er það aðalleikurunum Tom Hanks og
Philip Seymore Hoffman að þakka en báðir eru
þeir alveg frábærir í sínum hlutverkum.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
|
|
|
The Darjeeling
Limited |
|
|
|
Guði sé lof fyrir
Græna ljósið. Það virðist ekkert lát á fyrsta
flokks myndum á þeim bænum. Sú nýjasta, The
Darjeeling Limited, er jafnframt nýjasta mynd
Wes Andersons sem hefur á undanförnum árum fært
bíógestum úrvalsmyndir á borð við The Royal
Tenenbaums. Hann hefur þó náð nýjum hæðum með
The Darjeeling Limited
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
Lust, Caution |
|
|
|
Myndin er afar faglega gerð og heldur athygli
bíógesta frá upphafi til enda, söguþráðurinn
spennandi og dramatískur og leikararnir mjög
góðir, helst þó Tony Leung Chiu Wai, sem var
hreint frábær í hlutverki herra Yee.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
Atonement |
|
|
|
Sagan hefst á fjórða
áratugnum á sveitasetri í Bretlandi þar sem
óvæntur atburður setur líf aðalpersónanna úr
skorðum svo um munar. Í grunninn er þetta að
mestu leyti ástarsaga en að minna leyti saga um
friðþægingu, eins og titillinn gefur þó til
kynna.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
The Mist |
|
|
|
The Mist skapar góða
stemningu meðal áhorfenda. Þegar undirritaður
sat í Smárabíói og var djúpt sokkinn í atburði
myndarinnar, gerðist meira að segja eitthvað sem
sést sjaldan í íslensku kvikmyndashúsi:
áhorfendur klöppuðu fyrir „góða liðinu“.
Undirritaður klappaði að sjálfsögðu með.
Gísli Baldur Gíslason
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
|
|
|
National Treasure:
Book of Secrets |
|
|
|
Þetta er hreinræktuð ævintýramynd, hröð og
spennandi en handritið er ekki upp á marga
fiska. Þetta er þó hreint ágæt leið til að
gleyma skammdeginu og hverfa á vit
fjársjóðsleitar og ævintýra um stund.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
The Golden Compass |
|
|
|
Það er
erfitt að mæla með The Golden Compass.
Þrátt fyrir að hafa
nánast allt með sér, sterkan leikarahóp, öfluga
aðstandendur og vel skrifaða sögu, þá er
handritið það illa unnið að ekki er hægt að
njóta myndarinnar.
Gallharðir aðdáendur
bókanna láta þessa mynd ekki fram hjá sér fara
en þessi mynd hún býr ekki til fleiri aðdáendur.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
|
|
|
La Vie en Rose |
|
|
|
Þessi mynd er vel gerð sem lætur engan ósnortinn.
Tónlistin er að sjálfsögðu dásamleg og sagan
dramatík af bestu gerð.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD |