BÍÓGESTURINN  



Hver er uppáhaldsmynd

Sveppa
?

hummmm....... besta mynd sem ég hef séð?? Sko Jack Nicholson er snillingur í myndum eins og Shining, Gaukshreiðrið, As Good as it Gets, o.fl. og það eru myndir sem eru í miklu uppáhaldi. Svo er það Al Pacino, hann var bestur í Scarface og það er ein af mínum uppáhalds, einnig Scent of a Woman sem var snilldin eina! Og svo má ekki gleyma Godfather seríunni sem var einnig snilldar kaffi. Forrest Gump fær mig alltaf til þess að grenja eins og smástelpa, sértaklega þegar Tom er að tala við Jenny yfir leiðinu og segir "I miss you jenny" þá fer ég að grenja. Svo er önnur mynd sem fær mig til þess að grenja, það er Shawshank Redemption en þá græt ég af gleði yfir því þegar hann labbar að fangelsisverðinum og segir "Do you trust your wife" og hjálpar honum svo með bankamálin og biður hann um að gefa föngunum bjór vegna hitans úti, þvílík snilld!!! En þetta er bara Stephen King að þakka þar sem hann skrifaði þessa smásögu. Pulp Fiction bjargaði lífi mínu, mynd sem ég get horft á aftur og aftur og aftur og finnst það alltaf jafn gaman, þvílíkt gullhandrit, ekki hægt að klúðra því með lélegum leik, og fyrst við erum að tala um Pulparann þá er líka gott að minnast á Reservoir Dogs sem er einmitt orðin 10 ára og eldist ótrúlega vel, enda brillllli.

Jæja, besta grínmynd sem ég hef nokkurntímann séð er án vafa Big Lebowski, mynd sem er hægt að horfa endalaust á og atriðið í endann þegar þeir eru að dreifa ösku Donnies (Steve Buscemi) og hún fýkur öll á Dúdinn og festist í skegginu og sólgleraugunum, mjög fyndið. Eftir ég horfði á þessa mynd komst ég upp á lagið að drekka White Russian.

Og svo er það sú mynd sem hefur komið mér mest á óvart, það er Happiness, þvílík snilld, þegar ég var búinn að sjá hana þakkaði ég guði fyrir að eiga nokkuð eðlilega vini (sem ég taldi óeðlilega fyrir myndina) og góða fjölskyldu, góð mynd.

Ég læt hér við sitja, en ég gæti skrifað endalaust meira um mínar uppáhaldsmyndir, eins og LOTR, Die Hard serían og Fifth Element, og alveg rétt, ég ætla ekki að gleyma Fight Club, jibbí cola það er enn ein snilldin sem heppnast fullkomlega, ég fæ alltaf gæsahúð þegar pixies byrja að spila "where is my mind" í endann og blokkirnar hrynja niður, draumamynd, jæja ég er hættur.

En ég vil benda þeim á sem þetta nenntu að lesa að reyna að hafa upp á þýskri mynd sem heitir "Funny Game" hvar sem þeir geta því sú mynd er líklega skrítnasta besta og mest sláandi mynd sem ég hef nokkurtímann séð!!!!

Takk
Sveppi!

Sveppi (Sverrir Sverrisson) er dagskrárgerðarmaður á Popp-Tíví

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com